Af engu Kemur ekkert.....

17.02.2009 15:27:26 / Óli Helgi

Blogg og aftur blogg

Er að prufa nýja blogg síðu kíkjið á starina.blogga.is

Óli TheStar is out......

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 02:37:13 / Óli Helgi

Can't get Kylie out of Starina's head

Ókey ég veit að kl er er margt aftur en þegar hausinn minn fer á stað og ég get ekki sofnað þá finnst mér allt gott að standa upp og jafnvel blogg að skrifa handrit eða bara eitthvað. Hef samt ekki farið útí það að semja ljóð. Hhhhuuummm hvernig væri það???

En showið í gær hvað geðveikt gaman ég var mjög sáttur við útkomuna á atriðinu. Hárið, make up-ið, búningurinn og prefomans-ið ;) (veit þetta orð er er ekki til en hey that's me) .Mér hefur svo lengi langað að taka þetta lag. :haha: Mér heyrðist bara á öllu að áhorfendur voru ánægðir. Ég skemmti mér sjúklega vel. En nú er þetta búið og aðrir hlutir taka við. Ég talaði við vinkonu mína Lízellu á ballinu og við töluðum mikið um hvað væri næst á daskránni hjá mér. Hver veit hvað það verður? Ég var að að skoða play listan minn á iTunes-inum mínum og tók eftir því að Starína er mikið í Kylie. :lol: Reyndar tók ég þetta atriði þessa helgina vegna þess að ég hef fengið spurningar um hvenær næsta Kylie kvöld verður? Geggjað gaman að fá svona. Ég hef bara ekki treyst mér í þann pakka aftur. Ég reyndar held að nú sé komið að því að horfa í aðrar áttir. Ekki það að ég elska Kylie enn, og mun örugglega gera eitthvað með henni aftur. En maður má ekki festast í sama hamninum, Kylie sem þema gengur ekki endalaust. Show-in hennar hafa bara heilað mig svo sjúklega mikið. :haha:
En eitt sem ég vill segja er að Starína er Starína. Ég fék margar spurningar í dag og í gær "hver vastu?" rétta spurninginn hefði átt að vera "hvaða lag tókstu?" og/eða "með hverjum er það?". Alltaf þegar Starína stígur á svið þá er hún Starína þótt hún fá lög "lánuð" hér og þar. ;) Ég er ekki að reyna vera einhverjar frægar stjörnur, ég er að skappa mitt atriði og notta þessar stjörnur sem þema hjá mér.

En þessi drag reynsla er geggjað skemmtileg og vonandi einn daginn mun það gerast að þessi "Starína" verði alvöru maneskja sem ég vinn fyrir. En já ég sagði eimit í gær "úff maður ætti að fara hætta þessu á meðan þetta er gaman og áður en þetta verður hundleðilegt" þá var sagt við mig "já ég skill þig, en reyndu að gera þetta eins lengi og þú þraukar fyrir okkur hinn því að........" :haha: já þetta var geggjað gaman að heyra. :D
En nú er ég farinn aðeins tíminn leiðir í ljós hvað gerist næst. :) Einn dagur í einu. ;)

En mig langar að enda þetta á að þakka Magga, Ernu Lóu, Mömmu minni, Frikka, Hemma, Davíð, Gunnu og Einari fyrir alla aðstoð sem þau veitu mér í að gera þetta atriði að veruleika. Ég mett það mikið að hafa haft ykkur með mér. Einnig langar mig að þakka ykkur öllum sem studuð mig áfram án ykkar væri Starína ekki shining star. Takk fyrir mig.

Love, Starína

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 02:26:49 / Óli Helgi

Royal Drag

Þá er klukkan orðinn ótrúlega margt og ég er farinn að fá skrekkinn minn. Ég hlakka svo til þegar ég verð að hneigja mig fyrir áhorfendum. Þetta er svo sjúklega gaman. Já þeir sem vita ekki um hvað ég er að tala þá er drag sjóv í þjóðleikhúskjallarnaum á hinseigin bíódögum lokaballi og verðlauna afhending. Þar verður forsetinn og allt saman. :haha: ;) Ég vona bara að Sarína bregðist ykkur ekki.

Úr einnu í annað ég hef veið útnefmdur skemmtanastjóri FSS svo það verða æðisleg böll framundan og einhverskemmtileg heitt. Geggjað gaman. Svo er ég bara að fara til Aþenu í Eurovison og greiða hárið á Siiilvv..... Nei það er skjöldur úpS sorry SKILURU:!: Mín er bara svo ógeðslega stolt af þinni. Fór á Hafið Bláa og fór að gráta. Geðveikt mynband hennar Silvíu dressin, make-upið vá og hárið GEÐVEIKT, SKILURU:!:

En já meira um mig. Sem er svo eitthvað lalalalala. Ég hef fengið það staf að hjálpa til við búninga við leikritið hjá MK og þar eru þau að setja upp Roky Horror og ég hef verið beðin um að hanna lúkið á hann Frank N Furter,  s.s. hár og make-up (sem ég hef ekki mikið gert af nema þá á sjálfan mig svona stundum)  og auðvita búninginn (sem eg er ógeðslega klár í), mæti næstum segja að ég væri að stílasta hann. Geggjað spennadi verkefni. Núna nenni ég ekki að skrifa meira. So see ya' á morgun nei í kvöld eða þið vitið ;)

Óli TheStar is out.........

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 23:40:37 / Óli Helgi

Allt að gerast

Já elskunar mínar það er allt að gerast hjá mér þessa dagana. Ég bara veit ekki hverju ég á að byrja á að segja. En það er lítill tími fyrir blogg núna svo ég ætla að bara segja að Starína verður að sýna í Þjóðleikhúskjallarnanum 25. Mars á Hinsegin Bíó hátíð. Svo ég vonast til að sjá sem flesta og ég blogga meira um leið og ég hef tækifæri.

Óli TheStar is out.......

Ball og lokahátíð Hinsegin bíódaga verður haldið í Þjóðleikhúskjallaranum laugardaginn 25. mars klukkan 23.00 og fram eftir nóttu! Skemmtiatriði frá Heklínu í Trönsukofanum ásamt stjörnum úr íslenska draggheiminum!

Verðlaunaafhending Hinsegin bíódaga á miðnætti og síðan dunandi dans fram á morgun!

DJ's: DJ Bling

Miðaverð aðeins 1000 kr.

-Stjórn Hinsegin bíódaga



» 3 hafa sagt sína skoðun

04.03.2006 16:41:01 / Óli Helgi

Fokking brálaður!

Ég var að enda við að horfa á endursýninguna á Idol, og ég er geðveikt fúll út það að Nana datt út. Hann Ingó átti að detta út hann hefur ekki staðið sig vel lengi og á ekki skilið að fara í big band þáttinn. Ég held hann verði ekki góður þar. Nönu verður sárt saknað af mér og ég er bara ekki að komast yfir það að hún sé dottin út. Hún er kannski ekki besta söngkonan en hún er alvöru pop sjarna og átti skilið að komast lengra. Ég haef mikla trú á þessa stelpum og held hún getur komist langt í pop bransanum. Hinns vegar Ína er truplaðslega góð söngkona og þegar ég horfði á hana singja kom gæsað húð og þegar dómnefndinn var að segja sitt þá held ég bara að það hafa komið tár hjá mér.

En í gær var árshátíð FSS og Samtaka ball eftir á á Kaffi Reykjavík. Það var ekkert smá gaman! Ég skemmti mér konunglega. :D Ég reyndar varð soltið mikið drukkinn, en ég fann það ekkert fyrr en ég ákvað að fara heim. Og þá fék ég líka gott spark í rasinn frá Skildi (ekki í bókstaflegri merkingu, Skjöldur þú veist hvað ég á við ;) ). Annars var þetta bara geggjað gaman og geggjað stuð. Taka eitt gott djamm með trompi. Því núna ætla ég ekki eð drekka neitt fyrr en ég dimmitera og svo ætla ég bara að hætta reykja. Og ég veit ég hef oft sagt þetta og hætt og byrjað aftur. Og fólk hefur gagnrýnt mig fyrir það, en hey ég er allvega að reyna. En ég er bara hættur því Jónína frænka keyrði mér ekki í sopuna í gær eftir ballið sem ég er bara ánægður með. :haha: En já nú er ég farinn að fá mér fittufæði með Jónínu.

Óli TheStar is out........

» 15 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 23:42:42 / Óli Helgi

Needs a Date for the Prom

Þá ætla ég að gera heiðalega tilraunn til að blogga eitthvað skemmtilegt. Núna er sæluvika hjá mér reyndar byrjar hún í skólanum á þriðjudaginn í næstu viku en ég tók forskot á sæluna... Í dag fór ég í blokkun og á morgun fer ég í klippingu og litun, svo keypti ég mér ljósa kort og fór í ljós. Svo kemur föstudagurinn og þá er árshátíð FSS og Samtakaball á Kaffi Reykjavík þar sem minn uppáhalds DJ verður að spila. =) Ég hef ekki farið á ball með honum geggjað lengi. ;) Hvaða lag verður vinsælast? Hhhummm ég veit það verður töff töff töff. hehehehehe! Svo reyndar verður föstudagurinn mjög busy dagur, ég fer á kynningu já dönskum hönnunar skóla sem heitir TEKO og verður sú kynning frá 13 til 17 með mat og læti svo fer ég þaðan og beint á ÁRSHÁTÍÐ!!!!!! Ég er með lúkið, fötin, hárið, augun svo núna vantar mér bara gæjan og þá verður þetta fullkomið kvöld.

Hefur einhver verið að horfa á Idol nýlega? OMG! Hvað er að gerast, ég hef aldrei getað giskað á hver dettur út og þetta fer svo furðulega eitthvað. En ég verð að segja mér fannt miklu skemmtilegra að filgjast með þessu í fyrra. Það er ekki það sama núna. Auðvita ekki þetta eru ekki sömu þættirnir hahaha... Ég er hins vegar kominn með æði fyrir American Idol sem er á sirkus, það er geggjað spennandi í ár. Svo var ég að taka eftir nýjum raunveruleika þætti á RÚV sem er um tísku hönnuði og þau keppa um að hanna og einn dettur út fyrir vestu hönnunina. Geggjað gaman að horfa á. Þar kom nú einn hönnun sem ég kanaðist við, úr svörum plastipokka. En þessi þáttur var um að hanna úr óvenjulegu efni. Ég vet hvað ég hefði gert úr. ;)

Skólinn gengur vel, er samt geggjað kvíðinn fyrir dönsku áföngunum. Annas er ég að lesa þar í 202 Min Ven Thomas sem er eitthvað um homma. En í Íslensku fæ ég Íslandsklukkuprófið metið síðan í fyrra svo ég þurfi ekki að taka það aftur. Geggjað ánægður að þurfa ekki lesa þessa bók aftur. Svo er ég að pæla um að sækja um á Bifröst og Listaháskólanum fyrir næsta haust, svo kannski einhverstaðar annarstaðar líka fer eftir því hvað gerist. Einn dagur í einu. ;) Svo reyndar var ég á einhverju fundi um daginn var ég á fundi hjá aðlinum og þar var verið að tala um dimmerteringu og útskriftardaginn og ég fék smá fiðringi í margan. Jæja nú er ég búinn að tjá mig nóg í billi og er ég bara ánægður með lífið. Ég er að læra kirkja og þar er geggjað gaman og er sko alögrlega kissuberið uppá ísinn.

Óli TheStar is out.......

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 20:31:50 / Óli Helgi

Blogga ekkert má

Jæja á ég að fara blogga eitthvað? En um hvað? Ég hef ekki mikið að segja. Ég er nýbúinn að vera veikur og ekki var það gaman. En ég er enn að reyna koma mérí ábyrgðar gírinn og sýna ábyrgð í skólanum. Svo ég er að skemmta mér vel í leti gírnum horfa á DVD og ekkert að hugsa nema um að borða og hvíla sig. Alls ekki erfit! Látum okkur nú sjá.... ég er bara heila dauður svo ég nenni ekki að blogga bæjó

Óli ThStar is out......

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 23:47:56 / Óli Helgi

Ræðum þetta aðeins

Ókey það er undirskrifta listi að ganga fyrir Silvíu Nótt og svo lika áskorun til Alþingis. Undirskriftalistinn fyrir Silvíu Nótt er strax kominn með 4213 undirskriftir og byrjaði í morgun, en áskoruninn til Alþingis að samþykkja bæði stjórnarfrumvarp um réttarbætur og breytingartillögu sem veitir forstöðumönnum safnaða  heimild til vígslu samkynhneigðra para, er rétt svo kominn með 1333 undirskriftir og er búinn að vera í gangi meira en viku. Mér finnst afskaplega leiðinlegt að sjá þessar tölur. Annað hvort er fólki sama um svona lagað eða það vill ekki skrifa undir þetta. Það bregðast allir við einhverju lagi sem á að fara í Eurovision keppni sem mun ekki einu sinni breyta lífi hjá mörgum hvort sem það fer út eða ekki. Undirskrifalistinn ætti að vera orðinn hærri á áskorunna til Alþingis ef við pælum í því þá eru um 14.000 sam- eða tvíkynhneigðir á Íslandi og vilja þeir öruglega að þetta frumvarp gangi í gegn. Vinir mínir sem eru ekki samkynhneigðir skrifa undir þessa áskorun. Þannig ég vildi óska að þessi tala mundi hæka. Annað hvort er fólk bara að pæla í fólki eins og strákanir á stöð 2, Silvíu Nótt, og ekki skal talað um Hr. Ísland sem olli heitum umræðum á netinu. sko ekket að ví að ræða um þessa hluti á látta skoðarnir sínar koma í ljós en ef netið bara notaði í efnishyggju ekki hluti sem skippta máli þá er netið ekki sá besti fjölmiðill til að nota svonalagð í, nema þú sért "stór stjarna". Kannski vill enginn að þetta frumvarp gangi í geng.
Ekki misskilja mig kæru vinir ég hef ekkert á móti Sivlíu Nótt né strákunum eða eitthvað svoleiðis. Ég vill alveg sjá Silvíu Nótt í Grikklandi í maí. Sjálfur skrifaði ég undir báða listana en mér fannst bara leiðilegt að sjá muninn á viðbrögðum hjá fólki á frumvarpi sem skiptir máli í lífunu og einhverju lagi sem á að keppa í Eurovision.

"We are living in a material world, and we are material folk"

Óli TheStar is out......

» 10 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 23:26:36 / Óli Helgi

Skorum á Alþingi


Klikið hér á merkið til að taka þátt í undirskriftarlista

» 5 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 12:38:40 / Óli Helgi

Starína stiður Silvíu Nótt

Vá hræðilegur skakandall. Ég fék lagið sent með Sílvíu Nótt á e-mailið mitt og hlustaði á það. Svo frétti ég að það á að reka hana úr keppninni. Ef ég vissi það þá hefði ég ekki tekið við því....... btw. ég tek fram að ég kan ekki reglurnar í Eurovison, þótt ég hafi gaman að keppninni. En ég fílaði þetta lag í tætlur og það er skemmtilegt með húmor og alles. Loksins tekur einhver þátt í þessari keppni sem tekur henni ekki of alvarlega, hún á skilið sigurinn (að mínu mati) svo ég vona að hún fái að keppa. Ef hún kemst út með þetta lag þá spáí ég henni top 5 án þess að hafa heyrt hinn lögin. Það er bara satt löginn sem eru skemmtileg með húmor komast langt, sjáið Noreg í fyrra og svo Austurríki árið 2003. En ég óksa henni bara góðs gengis og krosslegg fingurna að hún fái að keppa. Og já NEI ég sendi ekki lagið áfram, ég tek ekki þátt í því að því sé dreift. Ég vissi bara ekki betur þegar ég fék það á mailið mitt so sorry guys:!: Silvía Nótt þú ert ógeðslega töff.

Óli TheStar is out......


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 11:05:48 / Óli Helgi

Eitthvað til að gera?

Vá hvað er langt síðan ég hef verið að blogga eða skoða blog. Ég tilheiri ekki blogþjóðinni (eða kannski kallast það að eiga líf). Ég hef ekkert að blogga um ...... eða jú víst ég er bara ekki að nenna að eyða tíma í það svo ég er er eitthvað skemmtilegt. Have fun:!:

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Langar þig að kyssa mig?
5. Gefðu mér gælunafn og útskýrðu af hverju þú valdir það.
6. Lýstu mér í einu orði.
7. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
8. Lýst þér ennþá þannig á mig?
9. Hvað minnir þig á mig?
10. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
11. Hversu vel þekkiru mig?
12. Hvenær sástu mig síðast?
13. Hefur þig einhverntíman langað að segja mér eitthvað en ekki geta það?
14. Ef eitthvað skelltu því í smettið á mér!

Óli TheStar is out......


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 16:16:30 / Óli Helgi

Áramótaskaupið

Það lítur allt út fyrir það að skaupið var gott í ár :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 12:00:25 / Óli Helgi

Dramadrottningin er mætt

Þá er komið nýtt ár. Mér fannst áramótaskaupið æðislegt, stelpu húmorrinn allveg að virka. Jólin hjá mér voru það afslappandi að ég nennti ekki að blogga og er ekki enn að nenna því, er bara blogga því ég er að bíða eftir að heima síminn verði laus. Ég fékk allt það sem mig langaði í skóinn og meira til. Britney, Siggu, showgirl Kylie , verkjaraklukku sem er æði, armband, byssu hárblásara, sápur, vasa og margt skemmtilegt. Svo skemmti ég mér konunglega um áramótin þar sem ég fór í mat hjá Skildi og Magga en við borðuðum heima hjá Ársæli. Skjöldur eldaði þessar fínu kræsingar þennan síðasta dag ársins. Svo láu leiðir okkar á ballið en á leiðinni var farið í partý heima hjá David og Heiðari. Þessi dítúur varð til þess að ég satt og drakk mitt vín og svo þegar lagt var á stað á ballið þá varð mín orðin hífuð *hyggist.* En ég skemmti mér geggjað vel á ballinu, ég hefði reyndar átt að dansa meira en ég var svo upptekinn að tala við alla og vera glamúrus. “æi essskan lankt síðan okkurs afa sést” Meira glamúrus gat það ekki verið. Hehehe. Eins og ég sagði þá hefði ég átt að dansa meira. En þrátt fyrir þetta var eingin ógleði og ég skemmti mér bara helvíti vel. Svo reyndar hélt ég að lífið mitt væri búið þegar ég og Maggi löbbum heim til hans og Skjaldar. Þar labbaði einhver gaur á móti okur og sagði “óji hommar” og Maggi spyr hann hvort hann hafi eitthvað á móti því og einhver orð fóru þar á milli. En ég vildi helst bara halda áfram að labba ég var alveg viss um að þarna yriðum við lamdir. En ekkert gerðist og Maggi og ég heldum leið okkar heim áfram. Maggi þú ert hetjan mín!!!! Svo tók ég leigubíl heim frá Magga og Skildi. Á leiðinni pikkaði ég upp tvær gellur og gisti uppí hjá annari þeirra. Hehehe. Nei ég er ekki orðin str8 þessar gellur voru Bryndís og Berglind og ég vildi tala svo mikið að við fórum heim til þeirra þar sem ég sofnaði kl. 10:00. Svo er ég búinn að sækja stundatöfluna mína og ég er í 20 eingingum í dagskóla og 3 í kvöldskóla. Þetta á að vera önnin sem ég útskrifast. Ég er í tveim eönsku áföngum, tveim ensku, tveim íslensku annar er bókmenntir og hinn stafsetning, hönnunarsögu, texdíll áfanga, og tískuteikningar. Hlakkar geðveikt til að byrja á mánudaginn. En já og auðvita strengdi ég áramótaheit en þau er öll í ígerðum.

Gleðilegt Nýtt Ár elsku vinir og takk fyrir það gamla.

 

Óli TheStar is out……..


» 76 hafa sagt sína skoðun

19.12.2005 02:54:48 / Óli Helgi

Sipt um kyn

Shit 10 atriði ef ég skipti um kyn í viku.

  1. fara í blálónið í bikiní.
  2. gifta mig í brúðarkjóll
  3. fara á djammið og hözla alla stráka, vera birch hehehe
  4. fá mér að ríða
  5. myndi allavega eiða einum degi sem lessa
  6. fara í fyrsætu störf
  7. vera homma hækja
  8. halda tónleika eins og Kylie
  9. þetta er alltof erfitt fyrir mig ég lifi nú mjög stelpulegu lífi svo það er ekkert annað sem ég get sagt.
  10. bara eftir vikuna að skipta ekkert aftur ef ég fíla það hehehe….
Óli TheStar is out.....

» 72 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 16:19:07 / Óli Helgi

Nýr sími

Ég er kominn með nýjan síma :haha: svo þið megið senda mér SMS og hringja í mig. PLZ það hringir einginn í mig...... :S eftir að ´rg bloggaði hitt. En ég er á fullu í prófum og ætla bara blogga eftir þau. Hafið það gott þanga til. :D

Óli TheStar is out.......

» 86 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8